top of page

Fyrsti dagurinn

í dag var okkar fyrsti dagur í vinnu við lokaverkefnið okkar. Í sameiningu ákváðum við að verkefnið okkar ætti að fjalla um pýramída jarðarinnar og því hefst okkar leit að upplýsingum um pýramída og svörum við rannsóknarspurningum okkar.

Dagurinn hófst á fundi á sal með kennurum sem sögðu okkur frá því hvað væri framundan næstu þrjár vikurnar.

Við höfðum farið allar þrjár saman á fyrirlestur hjá enskum manni sem rannsakað hefur pýramída meirihluta ævi sinnar og þar fengum við hugmyndir að mikilvægum hluta verkefnisins.

Við leituðum m.a. að staðsetningum pýramída, lásum okkur til um upphaf þeirra og gerðum þessa heimasíðu sem við munum uppfæra alla okkar daga við vinnuna.


bottom of page